Drullublesar

Binni ritaði í Binna Blaður þann 17. nóvember 2008

Áætlun ríkisstjórnarinnar er semsagt þannig að mín kynslóð á að borga óreiðu frekjukynslóðarinnar með verðtryggingarvitleysunni. Hvar stóð í þessari áætlun þeirra eitthvað um það að mín kynslóð haldi áfram að borga og verði ennþá landinu til að ná þessum spáða hagvexti aftur 2011? Það er ekkert í þessari áætlun sem á að halda ungu menntuðu fjölskyldufólki í landinu. Á allt landið að verða semsagt eins og smáplássin urðu eftir órættlætið sem var kvótakerfið? Ég sé ekki annað út úr þessari áætlun en að fólkið sem á að byggja upp landið sjái sér ekki fært að vera hérna lengur og borga vitleysuna, enda í raun ekki verið að bjóða upp á neinn annan valkost. Það eru til lönd sem reyna hvað þau geta að fá ungt, vel menntað fjölskyldufólk til að flytjast til sín, ólíkt íslenskum ráðamönnum sem hrekja sama fólk burt með níðingshætti og órættlæti. Verst að fávita ríkisstjórnin okkar sér ekki það sama og ég.

Sonus Futurae

Binni ritaði í Binna Blaður þann 17. nóvember 2008

Einn mesti fjársjóður íslenskrar tónlistarsögu er án efa 80’s unglingabandið Sonus Futurae. Þeir voru langt á undan mörgum öðrum því þeir voru fyrsta (og líklega eina) bandið sem var einungis skipað þremur strákum að spila á synthesizera. Þeir gáfu út eina plötu (Þeir sletta skyrinu) sem í dag er mjög eftirsóttur safngripur og fyrir utan Herbert og hans Dawn of the Human Revolution líklega besta alvöru 80’s tónlist sem kom út hér á landi. Ég hef átt þessa plötu lengi en seldi hana til félaga í vinnunni í síðustu viku með því skilyrði að hann myndi rippa hana á mp3, enda tónlistin með öllu ófáanleg á stafrænu formi. Hann gerði þó gott betur en það. Svo vildi til að einn fyrri meðlima Sonus Futurae er í dag doktor í gervigreind og kom í heimsókn í vinnuna í síðustu víku. Það var því ekki annað hægt en að fá manninn til að árita plötuna góðu. Hann var bara helvíti ánægður með það og sagðist ekki hafa gert þetta lengi. Hann lofaði meira að segja að senda okkur MP3 sem hann átti til af plötunni :)

null

Hér er því hægt að hlusta á dýrgripina “Skyr með Rjóma” og “Myndbandið”. Takið eftir frábærri textasmíð þar sem skyr eru lofsungin fyrir lágar kaloríur og myndbönd fyrir að vera framtíðin. Enjoy!

Skyr með Rjóma
Myndbandið

Íslensk tónlist

Binni ritaði í Binna Blaður þann 3. nóvember 2008

Hvað í?!?!?! Er þetta ekki bara eins og að brenna þjóðfánann? :P

Yndislegt.

Binni ritaði í Binna Blaður þann 30. október 2008

Eitthvað var performer genunum misskipt á milli þeirra bræðra Deyan og Boyoko. Tónlistarstíllinn er skv þeim sjálfum flokkaður sem “Ace of Base”.

Helgin

Stína ritaði í Stínu Blaður þann 26. október 2008

Það er augljóst mál að helgarnar verða meira virði þegar maður er komin í hóp vinnandi fólks - fyrri part ársins runnu þær saman við virku dagana því maður var alltaf í fríi. Við erum búin að eiga notalega helgi. Egill var auðvitað í aðgerðinni á föstudaginn þannig að það hefur ekki verið mikill hamagangur. Það var þó ákveðið að taka geymsluna í gegn og setja upp hillur sem voru keyptar fyrir vel rúmlega 2 mánuðum síðan. Þessi blessaða geymsla hefur nú aldrei gegnt hlutverki sínu almennilega þar sem það vantaði algerlega hillur - síðustu vikur höfum við ekki einu sinni komist inn í hana fyrir drasli sem þakti gólfið. Samkvæmt Binna var þetta nú ekki flókið mál að setja upp en tók töluverðan tíma og það var óskaplega ánægjulegt að sjá þær loksins uppsettar.

Ég bakaði nýstárlega skúffuköku í dag með ógurlega misheppnuðu en ágætlega bragðgóðu kremi. Húsið fylltist óvænt af gestum, mér til mikillar ánægju, og kakan er næstum því búin þannig að ég þarf sennilega ekki að borða hálft kíló af skúffuköku í kvöld (sem hefði verið mikil áþján - augljóslega ;) )

Lítil aðgerð

Stína ritaði í Binna Blaður þann 24. október 2008

Egill Kári fór í litla aðgerð í dag sem gekk ljómandi vel. Hann var svo duglegur þegar átti að fara svæfa hann að foreldrarnir voru að kafna úr stolti. Við erum búin að eiga mikinn kósý-dag.

Fyrst í morgun, þar sem Egill þurfti að vera fastandi fyrir svæfinguna þá lágum við upp í rúmi og kúrðum og horfðum á sjónvarpið til að dreifa huganum frá svengdinni. Svo liggur hann núna og hefur það notalegt í stofusófanum. Það fer nú oftast ósköp lítið fyrir litla snúð :)

Hvar var ég?

Stína ritaði í Binna Blaður þann 20. október 2008

Ég var að horfa á Kastljós áðan, þar var farið yfir “góðærið” á Íslandi. Tekið saman myndband frá fréttum liðinna ára, þar sem fjallað var um eyðsluna hjá landanum, dýrar íbúðir, bílar, fokdýrar jólagjafir o.s.frv. Og eina sem ég hugsaði á meðan var hvar ég hefði eiginlega verið meðan á þessari óráðsíu stóð. Ég minnist þess ekki að hafa haft það neitt sérstaklega gott síðustu árin (enda kannski ekki von þegar maður er eilífðarstúdent) né sérstaklega slæmt. Ég fór ekki í skrilljón utlandsferðir, átti ekkert sérstaklega flotta bíla, gat ekki leyft mér mikið meira í jólagjafakaupum en áður.

Flott að missa af fjandans góðærinu en þurfa svo að punga út fyrir ruglinu með öllum hinum. Þetta er svindl.

Hvað skal segja?

Stína ritaði í Binna Blaður þann 19. október 2008

Ég er alveg andlaus í blogginu þessa dagana. Ekki fer ég að blogga um vinnuna, mér finnst það ósmart. Þar með 70% af lífi mínu orðið “off limits” fyrir bloggið.

Við erum annars hress í öllu öldurótinu. Drengirnir finna nú ekki mikið fyrir þessu blessaðir, börn eru auðvitað ekki mikið að refresha moggann og hlusta á fréttirnar. Maður veltir því óneitanlega fyrir sér hvort það sé hægt að verða 5 ára aftur í nokkra daga - fínt að vera svo til áhyggjulaus :)

Fórum með þá á bókasafn í fyrsta skipti í gær. Það var ansi fínt. Egill Kári sýndi furðu mikla stillingu, hvíslaði þegar við átti og var hinn prúðasti. Við eigum eftir að nýta okkur þetta mikið.

Kreppa 2

Binni ritaði í Binna Blaður þann 10. október 2008

null

Kreppan

Binni ritaði í Binna Blaður þann 4. október 2008

Yfirmaðurinn minn hefur mikið verið spurður undanfarna daga um álit sitt á efnahagsvandanum, sem er ekki skrýtið þar sem hann er með doktorsgráðu í hagfræði. Hans svar er það besta sem ég hef heyrt um ástandið: Ég vaknaði í morgun, sólin skein úti. Ég er með öruggt þak yfir höfuðið og mat á borðinu. Börnin líða engan skort og búa við engan skort miðað við 90% af heiminum.

Einnig er eitthvað sem hefur gleymst að ræða í umræðunni..verð á áli hefur ekkert lækkað í efnahagskreppunni, sjávarútvegurinn sem hefur þurft að slípa til alla sína starfsemi fer að blómstra og ferðamannaiðnaðurinn mun slá öll met. Einnig hætta íslendingar að versla erlendis næstu mánuði ásamt því að panta vörur af internetinu, sem mun væntanlega verða óvæntur styrkur fyrir íslenskar verslanir fyrir jólin. Það er enginn og mun ekki verða neinn vöruskiptahalli. Ísland stendur andskoti vel. Fórnin verður að heimilin í landinu þurfa að borga nokkuð meira fyrir lífsgæðin að búa hér næstu mánuði eða ár og það verður minna af Range Roverum á götunum. Ekki á ég eftir að sakna þeirra.

26 queries. 0.455 seconds.
Powered by Wordpress
theme by evil.bert

eXTReMe Tracker